Practical upplifun

Hafðu samband ef þú ert að hugsa um hvataferð, hópefli, árshátíð, óvissuferð eða skemmtilegan dag fyrir þinn hóp.

 

 

 

Við hjá Practical leggjum höfuðáherslu á framúrskarandi þjónustu og persónuleg samskipti við viðskiptavini. Við sérhönnum alla viðburði og ferðir í samræmi við þarfir og óskir viðskiptavina okkar. Þannig verða Practical viðburðir og ferðir óhefðbundnir, skemmtilegir, skapandi og ógleymanlegir. Þetta aðgreinir okkur frá keppinautum okkar og hefur leitt til þess að viðskiptavinir okkar leita nær undantekningalaust til okkar aftur og aftur.

 

Okkar markmið er í raun mjög einfalt; skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini okkar. Þessu markmiði náum við fram með úrvals starfsfólki. Fólkið okkar hefur víðtæka reynslu á ólíkum sviðum. Við vinnum með sérfræðingum úr ólíkum áttum og gerum miklar kröfur til alls okkar starfsfólks og samstarfsaðila. Þær kröfur skila sér í magnaðri upplifun og ánægjulegum viðburðum. Við hjá Practical höfum unnið með nokkrum af stærstu fyrirtækjum Íslands, hér heima og í útlöndum og að sama skapi litlum fyrirtækjum og félagasamtökum. Hvort sem um er að ræða stóra eða litla hópa leggjum við sál okkar í verkefnið og njótum þess að þjónusta okkar viðskiptavini. 

 

 

Smelltu á myndina til að skoða bæklinginn

 

Umsagnir

Teris / Sæmundur Sæmundsson - Forstjóri

"starfsmenn Practical hafa ávallt komið með frábærar hugmyndir og skilað sínu hlutverki óaðfinnanlega"


Steinunn Þorsteinsdóttir - upplýsingafulltrúi / Marín Hrafnsdóttir - menningar- og ferðamálafulltrúi

"Viðkvæðið var aldrei það er ekki hægt – það var allt hægt"


Skoða fleiri


Viðburðafyrirtækið Practical og hótelið Hilton Reykjavik Nordica hlutu hin virtu CRYSTAL-verðlaun sameiginlega með bandaríska fyrirtækinu Harith Productions.  Verðlaunin voru veitt á Karabíahafseyjunni Arúba og tóku Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical, og Ingólfur Haraldsson hótelstjóri Nordica við þeim fyrir hönd sinna fyrirtækja

 

Smellið hér til að nálgast nánari upplýsingar