Ferðaskilmálar Practical ehf
Practical ehf er með ferðaskrifstofuleyfi frá Ferðamálastofu Íslands. Practical ehf er sömuleiðis með aðild í Samtökum aðila í ferðaþjónustu (S.A.F) . Fyrirtæki í þeim samtökum starfa samkvæmt almennum ferðaskilmálum samtakanna.
Um ferðir sem farnar eru á vegum Practical gilda bæði almennir skilmálar Samtaka Ferðaþjónustarinnar og ferðaskilmálar Practical . Við bendum okkar viðskiptavinum á að kynna sér þessa skilmála vel, bæði áður en kaup eiga sér stað og áður en ferð er farin.
Eftirfarandi verðskrá er í gildi hjá Practical:
Staðfestingargjald 20% af verði.
Þjónustugjald: 4.500,kr
Breytingargjald: 5.500kr
Sjálfsábyrgð: 5.000kr
Afgreiðslugjald:
Farmiðabókun með lest, ferju og bílaleigubíl.
Bókun á gistirými: Hótel, íbúð g sumarhús.
Bókun á aðgöngumiðum: Leikhús, söngleikir og kappleikir:
Í samræmi við samþykkt SAF greiðist afgreiðslugjald, 1.500 kr., fyrir hverja sérpöntun á þjónustu erlendis. Fyrir sérpöntun á þjónustu þegar ekki er keypt flug greiðist afreiðslugjald kr 6.000.-
Breytingagjald
Breyting á farseðli, 4500 kr. sem eru óendurkræfar.
Breyting á ferðapöntun í skipulagðri ferð, 4.500 kr. sem eru óendurkræfar.
Staðfestingargjald
Í þeim tilfellum þar sem við þurfum að skuldbinda okkur gagnvart erlendum samstarfsaðilum okkar með hærri upphæðum en sem nemur staðfestingargjaldinu getur þurft að innheimta hærra staðfestingargjald áður en bókun er gerð.
Breytingar á flugáætlun
Flugfélög hafa rétt til breytinga á flugáætlun og flugtímum vegna veðurfarslega orsaka, tafa vegna mikillar flugumferðar, eða vegna seinnar komu vélar úr öðru flugi eða vegna bilana. Flugfélög hafa og rétt til að skipta um flugvélakost reynist það nauðsynlegt. Practical ber ekki ábyrgð á slíkum töfum flugfélaga eða breytingum frá fyrirfram staðfestri flugáætlun.
Breytingar á hótelum
Samkvæmt starfsreglum gististaða hafa hótel og íbúðahótel leyfi til að yfirbóka gistirými til að mæta eðlilegum afföllum á pöntunum. Það getur gerst að gististaðir hafi ekki pláss fyrir alla þá sem bókaðir eru í viðkomandi stað þrátt fyrir staðfestingu til ferðaskrifstofu. Gististaðirnir eru þá skyldugir til að útvega viðskiptavinum sem ekki fá inni, sambærilegt eða betra hótel. Practical ber ekki ábyrgð á yfirbókunum gististaða, en aðstoðar að sjálfsögðu farþega eftir föngum.
Skemmdir á töskum:
Practical ber ekki ábyrgð á skemmdum á töskum sem kunna að verða í leiguflugi, áætlunarflugi, áætlunarbifreiðum eða öðrum farartækjum. Verði skemmdir á töskum í flugvél ber farþega að fá skriflega skýrslu hjá flugvallayfirvöldum, farseðli, töskumiðum (tag-númeri) og áætlaðan viðgerðarkostnað eða ef ekki er hægt að gera við töskuna, þá áætluðu verði á samskonar tösku. Flugfélagið mun svo sjá um greiðslu skaðabóta samkvæmt alþjóðlegum reglum og er greiðsla send beint til farþega. Sé um íslenskt flugfélag að ræða þarf sömuleiðis tjónaskýrslu frá flugvallaryfirvöldum farseðil og töskumiða, en þá snýr fólk sér beint til flugfélags. Hafi farþegi ekki tjónaskýrslu, getur hann ekki fengið tösku bætta. Practical ber ekki ábyrgð ef farangur tapast eða hann berst farþega seint vegna rangrar afgreiðslu á flugvelli.
Tryggingar
Það er rík ástæða fyrir farþega að huga vel að tryggingum áður en haldið er erlendis. Sé ferðakostnaður greiddur með greiðslukorti a.m.k. að hálfu leyti fylgir í flestum tilfellum ókeypis ferðatrygging frá greiðslukortafyrirtækinu. Athuga skal að þessar tryggingar eru mjög mismunandi eftir tegund greiðslukorts, og rík ástæða fyrir fólk og fyrirtæki að kynna sér skilmála hjá sínu kortafyrirtæki.
Öllum farþegum sem ferðast á vegum Practical stendur til boða að kaupa ferðatryggingu.
Forfallatrygging
Öllum farþegum sem ferðast á vegum Practical stendur til boða að kaupa forfallatryggingu. Gjaldið er kr 2.500,- fyrir fullorðna og kr 1000.- fyrir börn.
Greiðsla forfallatryggingu tryggir endurgreiðslu á þeim hluta fargjalds og gistikostnaðar sem greiddur hefur verið og ekki fæst annars endurgreiddur, ef farþegi getur ekki farið í fyrirhugaða ferð vegna: dauðsfalls, skyndilegs alvarlegs sjúkdóms eða slyss sem krefst sjúkrahússvistar hans, maka hans, hvort sem um er að ræða maka samkvæmt hjónabandi eða staðfestri samvist, sambýlismaka, barns farþega eða barnabarns, foreldra hans eða tengdaforeldra, afa hans, ömmu eða systkina (framvísa þarf vottorði), verulegs eignatjóns á heimili hans eða í einkafyrirtæki sem gerir nærveru hans nauðsynlega (lögregluskýrsla liggi fyrir). Framangreind atvik skulu vera þess eðlis að óhjákvæmilegt sé að afturkalla áður gerða pöntun. Sé ferð afturkölluð af ástæðum sem taldar eru upp hér að ofan er forfallatrygging, þjónustugjald, lántökukostnaður og endurgreiðslugjald óafturkræft.
Sjálfsábyrgð í hverju tjóni er 5.000 kr. á mann Sé ferð afturkölluð og falli undir ofangreinda skilmála endurgreiðist allt nema tryggingargjaldið og sjálfsábyrgðin.
Practical óskar viðskiptavinum sínum og þeim sem með þeim ferðast góðrar ferðar.
Practical ehf áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur sem kunna að leynast í texta og verðum