Notendaskilmálar

Öll viðskipti um vefsíðu (hér vefur Practical ehf) eru háð notenda- og samningsskilmálum (hér eftir “skilmálar”) sem hér koma fram.

 

Við mælum með að þú lesir þessa skilmála vandlega áður en þú skoðar vefsíðu Practical ehf (vefur http://www.practical.is og http://www.practicaliceland.com) . Eftirfarandi skilmálar gilda um heimsóknir þínar og viðskipti sem þú kannt að gera í gegnum vefsíðu Practical.

Þessi heimasíða er eign og í umsjón Practical ehf ásamt öllum upplýsingum, myndum, hugbúnaði, texta og allri þjónustu sem veitt er á þessari vefsíðu.

 

Samþykki þessara skilmála; lögsaga:

Fyrir að fá aðgang að þessari vefsíðu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum skilmálum og til að fara eftir öllum viðeigandi lögum og reglum. Þú ábyrgist að hafa heimild að lögum til að samþykkja þessa skilmála fyrir sjálfa(n) þig eða þann aðila sem þú kemur fram fyrir. Verði einstök ákvæði skilmála þessa lýst ógild, ólögmæt eða eigi verður unnt að leita fullnustu þeirra að einhverju leyti, skal það engin áhrif hafa á gildi, lögmæti og fullnustumöguleika annarra ákvæða skilmálanna. Hvers konar undantekningarnar og takmarkanir eiga aðeins við að því marki sem íslensk lög heimila. Þessari vefsíðu er haldið úti frá starfstöð Practical ehf á Íslandi. Með því að fara inn á vefsíðuna samþykkir þú að íslensk lög gildi um vefsíðuna, efnið, aðgang þinn, skoðun og kaup á vefsíðunni, sem og að varnarþing vegna ágreiningsmála sé Héraðsdómur Reykjavíkur. Þeir sem fara inn á vefsíðuna og skoða það frá stöðum utan Íslands gera það á eigin ábyrgð. Practical ehf. tekur ekki ábyrgð á því að efni vefsíðunnar sé hæft til aðgangs eða notkunar utan lögsögu Íslands og allur aðgangur frá ríkjum þar sem efni vefsíðunnar er ólögmætt að einhverju leyti er bannaður. Þú samþykkir að Practical ehf. eigi rétt á því að neita þér um aðgang að vefsíðunni hvenær sem er, án nokkurs fyrirvara, sem og til að stöðva tengingu þína eða aðgang að vefsíðunni.

 

Sending upplýsinga, vinnsla Practical efh á upplýsingum sem þú gefur og ábyrgð á þeim upplýsingum sem Practical ehf gefur:

Upplýsingarnar sem birtar eru á vefsíðu þessari eru teknar saman af Practical ehf og eru sóttar til fyrirtækisins sjálfs og utan þess. Practical tekur enga ábyrgð á því hvort upplýsingarnar séu réttar eða tæmandi. Einkum ber að gæta þess að upplýsingar þessar kunna að vera ófullkomnar, í þeim kunna að leynast villur og þær kunna að hafa úrelst. Því er rétt að sannreyna upplýsingar sem fengnar eru á þessari vefsíðu áður en ráðstafanir eru gerðar á grundvelli þeirra með því að hafa samband við skrifstofu Practical í Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík. Practical ber ennfremur enga bótaábyrgð vegna hvers kyns tjóns eða miska er kann að stafa af því að aðgangur fékkst eða fékkst ekki að vefsíðu þessari eða vegna þess að treyst var á einhverjar upplýsingar sem birtar eru á vefsíðu þessari.

 

Takmörkun á notkun þinni á vefsíðu og efni:

Leyfilegur aðgangur þinn að vefsíðunni er bundinn við aðganginn sem slíkan, skoðunar vefsíðunnar og til kaupa á vefsíðunni. Leyfilegur aðgangur þinn nær ekki til annarrar notkunar á efni eða vefsíðu. Þér er óheimilt að tengja vefsíðuna við aðra vefsíðu, eða gera vefsíðuna hluta af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis frá Practical ehf. Öll notkun á sérhæfðum hugbúnaði er óheimil að öðru leyti en nauðsynleg er vegna leyfilegra athafna þinna. Leyfi þitt fellur sjálfkrafa niður ef þú brýtur einhver atriði þessara skilmála.

 

Endurskoðun efnis:

Practical ehf. er heimilt að endurskoða, breyta eða fella út efni hvenær sem er án fyrirvara. Að samaskapi getur Practical ehf endurskoðað hvenær sem er og breytt þessum samningsskilmálum. Með samþykkt þessara skilmála samþykkir þú að vera bundin(n) af öllum slíkum breytingum.

 

Síður sem tengdar eru vefsíðu Practical og er ekki haldið úti af Practical ehf:

Practical ehf. tekur enga ábyrgð á þeim vefsíðum sem tengdar eru vefsíðunni en er ekki haldið út af Practical ehf. Að sama skapi ræður Practical ehf ekki efni eða fyrirkomulagi á öðrum vefsíðum en sínum eigin og geta ekki borið ábyrgð á þeim eða hverjum þeim viðskiptum sem kunna að vera gerð í gegnum slíkar síður.

 

Vörumerki o.fl:

Vörumerki, þjónustumerki og viðskiptaheiti sem birt eru á vefsíðu þessari njóta verndar á Íslandi og alþjóðlega. Hvers kyns notkun þeirra er óheimil nema að fenginni skriflegri heimild fyrirfram frá Practical ehf, nema í þeim tilgangi einum að tilgreina vörur eða þjónustu fyrirtækisins.