Hópefli

Faglegt, árangursríkt og skemmtilegt. Practical leggur mikla áherslu á að greina þarfir hvers hóps fyrir sig, það er ástæðan fyrir því að viðskiptavinir leita til okkar. Með þessum hætti verður hópeflið markvisst og þeim árangri er náð sem stefnt er að. Hópefli er gjarnan notað til þess að auka samheldni innan hópsins, bæta traust og að sjálfsögðu er lagt upp með það að vinnufélagar upplifi hvern annan í nýju umhverfi. Hjá Practical starfa sérmenntaðir hópeflisfræðingar sem hafa áralanga reynslu af hópavinnu, þeir koma fljótt auga á hvernig bæta má árangur hópsins.

 

Gjarnan fléttum við saman samvinnuþrautir og fyrirlestra til að hámarka árangur dagsins. Í langflestum tilfellum vilja viðskiptavinir blanda saman hópefli með annarri dagskrá sem Practical skipuleggur. 

Sendu fyrirspurn

Nafn


Netfang


Sími


Fyrirspurn