Skemmtilegar, fræðandi og efla liðsheild. Hvataferðir Practical njóta sívaxandi vinsælda og eru tilvaldar fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytta, skemmtilega og fræðandi dagskrá, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Ferðirnar eru til þess að auka þekkingu, skemmta starfsfólki og byggja upp liðsheild í léttu og skemmtilegu andrúmslofti. Tilvalið er að blanda hvataferðum við fundi, árshátíðir, starfsmannadaga eða hvern annan atburð hjá þínu fyrirtæki.
Engar tvær ferðir eru eins hjá okkur, enda hefur hver vinnustaður og hver hópur mismunandi þarfir og markmið sem að starfsfólk Practical vinnur út frá. Við leggjum mikinn metnað í að veita hámarks gæði þegar kemur að gistingu, akstri, veitingum og afþreyingu, við vinnum einungis með reyndum og traustum þjónustuaðilum til að tryggja örugga og fagmannlega útkomu.
Hvataferðir eru tilvaldar þegar þakka á starfsfólki fyrir vel unnin störf, fagna góðum árangri og/eða auka samheldni og þekkingu starfsmanna. Notaðu tækifærið og komdu þínu fólki á óvart með frábærri hvataferð og náðu settu marki.