Óhefðbundnar og klæðskerasniðnar. Practical býður uppá skemmtilegar sérferðir fyrir fyrirtæki, stofnanir og hópa. Við tökum að okkur allan undirbúning og sjáum um öll smáatriðin. Við setjum saman ferðir í tengslum við viðburði hjá fyrirtækjum, hvort sem um er að ræða árshátíð, ferð með viðskiptavini, vinnufund eða hvataferð á fjarlægar slóðir. Við höfum að skipa einvala liði sérfræðinga með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd sérferða bæði innanlands og erlendis.
Við leggjum mikla áherslu á fyrsta flokks gististaði, rútur, afþreyingu og sérfróða fararstjóra, sem í samvinnu við samstarfsaðila okkar á hverjum stað kappkosta við að gera ferðirnar sem ánægjulegastar. Engar tvær ferðir eru eins hjá okkur því við vitum að hver vinnustaður og hver hópur hefur mismunandi þarfir og markmið. Við bjóðum þjónustu sem er sérsniðin að óskum hver og eins. Hjá okkur er allt kapp lagt á að gera þína ferð sem ánægjulegasta.
SÉRFERÐIR – Ferðir án takmarkana