Faglegir, fræðandi og skapandi. Practical leggur mikinn metnað í undirbúning og framkvæmd starfsdaga fyrir stór sem smá fyrirtæki. Eins og önnur verkefni Practical eru dagarnir sniðnir út frá þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig og áhersla lögð á að uppfylla allar væntingar viðskiptavinanna og gera daginn einstakann.
En hvað er starfsdagur?
Starfsdagur felur í sér þátttöku allra starfsmanna fyrirtækisins sem saman vinna að markmiðum dagsins. Hér gefst kjörið tækifæri til að kynna nýjar áherslur í rekstrinum, fara yfir markmið og gildi fyrirtækisins og móta framtíðina. Hvað hefur tekist vel upp og hvað þarf að laga.
Hvað gerum við?
Practical fundar með þínu fólki til þess að greina ykkar þarfir og óskir. Okkar þekking og reynsla skilar sér við undirbúning og umsjón starfsdaga enda skiptir gríðarlegu máli að velja rétta staðinn og þá dagskrá sem skilar markmiðum dagsins. Practical tekur að sér að finna heppilega staðsetningu fyrir daginn, ræður fyrirlesara og tekur að sér heildarumsjón með öllu sem lítur að deginum Við leggjum áherslu á að vinna náið með forsvarsmönnum fyrirtækisins, þannig gerum við daginn árangursríkan.