Practical hefur unnið með mörgum fyrirtækjum stórum sem smáum við skipulagningu og umsjón með mörgum eftirminnilegum ferðum, starfsdögum, hópeflisdögum, vinnufundum og atburðum. Meðal viðskiptavina Practical eru bæði innlend og erlend fyrirtæki eins og Landsbanki Íslands, VÍS, Lýsing, Íslandspóstur, Síminn, Spron, Kaupthing, Reykjavíkurborg, Össur, Audi, TDC og fleiri…
"Í okkar annasama starfsumhverfi er gott að nýta sér þjónustu þeirra sem hafa reynslu í því að setja upp skemmtanir fyrir fyrirtæki. Við hjá starfsmannafélagi 365 miðla höfum nýtt okkur þjónustu Practical og erum ánægð með hana á allan hátt. Góðar hugmyndir, fagmennska og gleði einkenna stelpurnar í Practical. Ég mæli með því að þið prófið! "
"Ég fékk það verkefni að skipuleggja ferð til Íslands með 20 norskar dömur sem ferðast mikið saman. Eftir tilboð frá ýmsum aðilum leist okkur best á tilboð frá Practical, bæði öll upplifunin sem var innifalin og ekki síst gott verð. Því get ég lofað að öll ferðin fór langt fram úr mínum og þeirra væntingum og við nutum hverrar mínútu af Íslandsferðinni okkar."
"Ég hef nýtt mér þjónustu Practical unanfarið ár með góðum árangri. Hvort sem um er ræða skipulagningu á hópefli eða kokkteilboði þá hefur útkoman verið góð þar sem skipulag, útsjónarsemi og hugmyndaflug hefur einkennt þeirra störf. Get ég því hiklaust mælt með Practical."
"Teris hefur nýtt þjónustu Practical í mörg ár. Það er sama hvert verkefnið hefur verið, starfsmenn Practical hafa ávallt komið með frábærar hugmyndir og skilað sínu hlutverki óaðfinnanlega. Skipulag og stjórnun af hálfu Practical er til fyrirmyndar. Það sem skiptir þó ekki síst máli er að starfsmenn Practical smita frá sér starfsgleði og ferskleika sem gæðir öll þeirra verk þeim neista sem gerir hvert verkefni einstakt. Hjá Teris er Practical fyrsti valkostur þegar kemur að skipulagningu viðburða."
"Samstarfið við Practical var fagmannlegt og skemmtilegt frá upphafi til enda. Þau komu vel undirbúin á fyrsta fund með frábæra hugmynd um hvernig ætti að tækla verkefnið. Þau aðlöguðu síðan sínar hugmyndir að okkar og komu á endanum með frumlega og skemmtilega lausn. Hver fundur var vel undirbúinn og hnitmiðaður og því fór enginn tími til spillis. Þegar viðburðurinn fór fram að lokum gat ekkert farið úrskeiðis því skipulagningin var upp á 10. Þetta er í annað skipti sem við hjá DHL notum Practical og munum án nokkurs vafa leita þangað aftur"
"Það var ánægjulegt og virkilega spennandi að vinna með stelpunum í Practical að velheppnuðum hátíðarhöldum 100 ára afmælis Hafnarfjarðarbæjar. Þær eru harðduglegar, hressar og útsjónasamar. Viðkvæðið var aldrei það er ekki hægt – það var allt hægt. Allt var gert fagmannalega og skipulag var með besta móti. Við þökkum Practical fyrir frábæra samvinnu og virkilega vel heppnað 100 ára afmæli."